Verslaðu yfir 11.900 kr og þú færð fría sendingu
Karfan þín er tóm
Karfan þín (0)
Þig vantar
fyrir fría heimsendingu

Heildarverð 0 kr
Sending er reiknuð við greiðslu

Privacy policy

Persónuverndarstefna Happy Hydrate

Ábyrgðaraðili: Dro2026 ehf., kt. 490726-0120 („Happy Hydrate"). Fyrirspurnir um persónuvernd: info@happyhydrate.is.

Hvaða upplýsingum söfnum við?

  • Grunnupplýsingar: nafn, netfang, símanúmer, heimilisfang og póstnúmer — það sem þú gefur upp við kaup eða skráningu í áskrift.
  • Viðskiptaupplýsingar: pantanir, áskriftarstillingar (vörur, tíðni, afhendingarmáti), greiðslusaga og samskipti við þjónustuver.
  • Greiðsluupplýsingar: kortanúmer fara ALDREI um kerfi Happy Hydrate — kortið er dulkóðað í vafranum þínum og varðveitt hjá greiðslumiðluninni Verifone. Við sjáum og geymum aðeins síðustu fjóra stafi og gildistíma, til auðkenningar.
  • Vefnotkun: vefkökur og sambærileg tækni frá vefversluninni (Shopify) og auglýsingamælingum, sjá „Vefkökur" að neðan.

Í hvað notum við upplýsingarnar?

  • Að afgreiða pantanir og reka áskriftina þína: gjaldfærslur, afhendingu, tilkynningar (t.d. staðfestingar og áminningar um greiðslukort sem virkar ekki).
  • Þjónustu við þig þegar þú hefur samband.
  • Markaðssetningu — fréttabréf og tilboð — sem þú getur alltaf afskráð þig úr (hlekkur neðst í hverjum pósti).
  • Mælingar á árangri auglýsinga.

Hverjir vinna með gögnin?

Við seljum aldrei persónuupplýsingar. Eftirtaldir vinnsluaðilar koma að rekstrinum og fá aðeins það sem þarf í sitt hlutverk:

  • Shopify — vefverslunin sjálf (pantanir, viðskiptavinaskrá).
  • Verifone — greiðslumiðlun; varðveitir kortaupplýsingar.
  • Dropp — afhending sendinga (nafn, heimilisfang, símanúmer).
  • Resend — sending þjónustupósta (netfang, efni póstsins).
  • Klaviyo — markaðspóstar og fréttabréf (netfang, kaupsaga).
  • Meta — mælingar á árangri auglýsinga.
  • Vöruhús/dreifingaraðili — tínsla og pökkun pantana.

Sumir þessara aðila starfa utan EES; í slíkum tilvikum byggir gagnaflutningur á viðurkenndum flutningsheimildum (svo sem stöðluðum samningsskilmálum ESB).

Vefkökur

Vefverslunin notar vefkökur til að muna körfuna þína og innskráningu, og mælingakökur (t.d. Meta pixel) vegna auglýsinga. Þú getur stýrt vefkökum í stillingum vafrans þíns.

Hversu lengi geymum við gögn?

Á meðan þú átt í viðskiptum við okkur og eftir það eins lengi og bókhaldslög krefjast (almennt 7 ár um viðskiptagögn). Markaðslistum er eytt/afskráð um leið og þú óskar þess.

Réttindi þín

Þú átt rétt á að fá aðgang að þínum upplýsingum, fá þær leiðréttar eða þeim eytt, andmæla vinnslu (þ.m.t. markaðssetningu) og fá gögnin afhent á tölvutæku formi. Sendu okkur línu á info@happyhydrate.is og við afgreiðum það. Þú getur einnig beint kvörtun til Persónuverndar (personuvernd.is).

Breytingar

Uppfærð útgáfa þessarar stefnu birtist ávallt á þessari síðu.